Takk fyrir MJÖG skemmtilegt kvöld stelpur !! Það var svoooo gaman, skemmtilegt "ljót bindi" þema og takk Hildur fyrir frábært boð. Þú ert yndisleg 
Jæja þar sem ég er alltaf svo góð að muna eftir svona kvöldum þá ætla ég að koma með nokkra skemmtilega punkta.
Byrjum á bindunum:
Ok bindið hennar Dönu toppaði öll önnur Bindi kvöldsins. Bindið hennar var einn ÆLUPOLLUR hahaha.
Bindið mitt bara svona hefbundið melludólgabindi frá the 80´s.
Bindið hennar Önnu var mjög einfalt og einlitað, blátt og HRIKALEGA ekki ljótt. Bindið hennar Rakelar var svona sjaldgjæft klútabindi, hef ekki séð það áður en það virkaði vel sko.
Bindið hennar Hildar og Sigrúnar, hmmm þó hljóta að hafa verið svo hrikalega ljót því ég bara man ekki eftir þeim. En ég get samt látið á það reyna. Sko, mig minnir að Hildur hafi verið með grátt, röndótt bindi sem minnir mann á lík, og Sigrún var með dökkblátt bindi með grænum klessum á.
Erró klikkaði ekki og var auðvita með bindi líka, það var silki rautt með rauðum röndum, sem minnir mann á blóðsugur. Setningin hennar Hildar var góð: "hver setur rautt á rautt"
Hildur stóð uppúr með Mohjito-ana sem hún blandaði fyrir okkur. Mmmm.. ótrúlega góðir.
Hildur stóð líka upp úr með partýtónlist, sem leiddi að því að Dana og Snædís hlupu yfir í íbúðina til Önnu og náðu í THE PARTYCD ever.
Snædís og Dana gerðu díl, afþví þær náðu í cd-inn þá þurftu þær ekki að borga í Taxa.
Það stóðst hjá mér, veit ekki með Dönu.
Rakel grumpy stóð líka upp úr því hún var í svo Hrikalega góðu stuði þegar hún kom NOT, en hún kom sér fljótt í stuð með því að þamba dry Gin og Mohjiot-inn hennar Hildar.
Þegar Anna og Dana töluðu klukkutímunum saman hvort það voru 475 krónur eða 473 krónur sem Anna skuldaði Dönu. Greinilegt að kreppan fer þar með stjórn.
Jæja svo var haldið í bæjinn. Hildur ákvað að vera heima útaf kreppunni. Við hinar fórum í 7 manna leigubíl og skemmtum okkur á leiðinni.
Við byrjuðum á því að fara á Vegamót. Við áttum í erfiðleikum með að komast inn, eða nei, við bara vorum of góðar með okkur til að fara í röð og fórum í VIP. Þegar við vorum alveg að gefast upp á dyravörðunum, kom JÓEL PRINSINN minn okkur til bjargar og reddaði okkur inn. Hann var valinn maður vikunnar á Rollusíðunni eftir að hafa staðið sig svona vel.
Þegar við fórum út af vegó splittaðist hópurinn eiginlega... en á endanum komust allir heim. Klukkan var fimm þegar ég komst loksins heim í Heimgerða Pizzu og Familyguy, en sofnaði mjög fljótt eftir pizzuna.
Ég á engar myndir til að setja með þessum pistli. En þær voru margar í Hildar myndavél, kannski að hún skelli nokkrum hér inn til hliðar.
Svo ætla ég að koma með gott ráð við þynnku: SUND - köld og heit laug til skiptis, drekkur í sig þynnkuna, maður kemur úr sundi hressari sem aldrei fyrr.
Kveð að sinni
Snædís